Góðan dag,
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) vilja á ný (svipaður tölvupóstur fór út í febrúar 2021) vekja athygli á bæklingi sem gefinn hefur verið út á tíu tungumálum um ávinning þess að stunda íþróttir með íþróttafélagi. Bæklingurinn er ætlaður foreldrum barna af erlendum uppruna, en rannsóknir hafa sýnt að þátttaka þessara barna er um helmingi minni en barna af heimilum þar sem töluð er íslenska. Bæklingana er bæði hægt að nálgast í rafrænu formi á heimasíðum samtakanna www.isi.is og www.umfi.is en einnig í prentuðu formi á skrifstofum þeirra. Bæklingarnir eru til á arabísku, ensku, filippseysku, íslensku, litháísku, pólsku, spænsku, taílensku, úkraínsku og á víetnömsku. Spænska útgáfan bættist við í fyrra og nýjasta útgáfan á úkraínsku var að bætast við.
Í viðhengi er bréf með nánari upplýsingum, en það er von okkar að í sameiningu takist okkur að fjölga börnum af erlendum uppruna í íþróttastarfi. Þetta er stöðug vinna og talsverð áskorun, en við erum þeirrar skoðunar að þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi geti auðveldað börnum að eignast vini og komast betur inn í íslenskt samfélag.
Hér fyrir neðan eru svo tenglar á bæklingana á rafrænu formi.
Arabíska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertu%20me%C3%B0%20-%20Arab%C3%ADska?=
Enska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_enska_web.pdf?=
Filippseyska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_filipino_web.pdf?=
Íslenska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_isl%20-%20Copy%20(2).pdf?=
Litháíska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_Lith%C3%A1enska_web.pdf?=
Pólska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_poslka_web.pdf?=
Spænska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_Sp%c3%a6nska.pdf
Taílenska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_tae_web.pdf?=
Kær kveðja
Ragnhildur Skúladóttir
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Sviðsstjóri Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs
(+354) 514 4000 / (+354) 863 4767