Í dag fengu nemendur á unglingastigi skemmtilega heimsókn þegar rithöfundurinn og fyrirlesarinn Þorgrímur Þráinsson hélt fyrirlestur sinn „Verum ástfangin af lífinu“.
Í erindinu var fjallað um mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin lífi og vera sinn eigin gæfusmiður. Þorgrímur lagði áherslu á unglingarnir ættu að sýna öðrum virðingu, eiga góð samskipti við vini og fjölskyldu og koma fallega fram við aðra. Þá ræddi hann um mikilvægi hreyfingar, kraft markmiðasetningar og hvernig hægt sé að rækta hæfileika sína og vinna markvisst að því að verða betri manneskja.
Gaman er að segja frá því að Þorgrímur hafði sérstaklega orð á því hversu gott hljóð og athygli hann fékk frá nemendum.
Við þökkum Þorgrími kærlega fyrir hvetjandi fyrirlestur sem náði vel til nemenda.