Fyrir páskafrí skiluðu nemendur í 9. og 10. bekk afrakstri sínum í verkefninu „Ljósin kveikt en enginn heima“. Nemendur hönnuðu og smíðuðu glæsileg líkön þar sem þeir fléttuðu saman þekkingu á rafrásum og listrænni sköpun.
Það var virkilega gaman að sjá hversu ólíkar og frumlegar lausnir nemendur fundu á verkefninu. Líkön nemenda voru fjölbreytt og mátti meðal annars finna bíósal, kaffihús, pylsuvagn, hársnyrtistofu og leikhús. Meðfylgjandi eru myndir af nokkrum þessara glæsilegu líkana.