news

Öskudagsfjör framundan!

17 Feb 2026

Kæru foreldrar og forráðamenn í Urriðaholtsskóla

Á morgun, miðvikudaginn 18. febrúar ætlum við að halda upp á Öskudaginn með pompi og prakt. Við hvetjum alla nemendur til að mæta í búningum og njóta dagsins með okkur.

Vinsamlegast athugið að þetta er skertur skóladagur á grunnskólastigi. Skólinn hefst kl. 08:30 hjá grunnskólanemendum og lýkur eftir hádegismat eða kl. 12:00. Þá tekur frístund við fyrir þau börn sem þar eru skráð.

Nokkur atriði til að hafa í huga: Vopn sem eru fylgihlutir búninga geta fylgt með en ekki leyfilegt að beita þeim í leik. Við hlökkum mikið til að sjá alla kynjahluti, ofurhetjur og skrautlegar verur mæta til leiks!

Bestu kveðjur,

starfsfólk Urriðaholtsskóla