Nemendur í 10. bekk við skólann tóku nýverið þátt í Stíl hönnunarkeppni Samfés fyrir hönd Urra félagsmiðstöðvarinnar. Þátttakendur voru þær Eva María Friðbergsdóttir, Hugrún Birna Gunnarsdóttir, Lára Hlín Þorsteinsdóttir og Rakel Kara Ragnarsdóttir.
Við erum ótrúlega stolt af þeim fyrir þátttökuna og metnaðinn sem þær sýndu í verkefninu.
Hönnun þeirra, ásamt aukahlutum og hönnunarmöppu, er nú til sýnis á göngum skólans þar sem margir hafa lagt leið sína til að skoða afraksturinn.