Vegna uppfærslu á léni hjá Mentor þurfa þeir notendur sem þegar hafa hlaðið niður öppunum sem tengjast kerfinu að para þau á ný.
Uppfærslan verður gerð að kvöldi 21. ágúst og tekur skamma stund.
Þetta gildir bæði um appið Infomentor Home sem ætlað er nemendum og aðstandendum og Infomentor Staff sem ætlað er starfsmönnum.
Uppfærslan hefur aðeins áhrif á aðgang að appinu ekki að vefnum í tölvu eða snjalltæki.
Þeir sem hafa ekki hlaðið niður Mentor appi áður ættu að bíða með að hlaða því niður þar til uppfærslan hefur verið gerð til að sleppa við að para á ný.
Hér að neðan eru leiðbeiningar sem notendur geta fylgt til að para appið á ný.
Að para saman aðgang í snjalltæki og tölvu
Mentor býður upp á tvö öpp annað ætlað nemendum og aðstandendum og hitt ætlað starfsfólki. Öppin eru sótt í „Google Play store“ (Android) eða „App Store“ (iOS) með því að slá inn „Infomentor home“ (nemendur/aðstandendur) eða „Infomentor staff“ (starfsfólk) í leitarslóðina.
Þegar búið er að sækja appið er komið að skrefi tvö sem er að para saman snjalltækið og aðgang í tölvu.
Til að para appið við snjalltækið þarf notandinn að skrá sig inn á Mentor aðganginn sinn í gegnum vefinn með vafra í tölvu eða snjalltæki. Við mælum með að para með tölvu.
Nemendur og aðstandendur:
Til að para appið við símann þarft þú að skrá þig inn á Minn Mentor í gegnum vafra í tölvu eða snjalltæki (www.infomentor.is) og velja andlitsmerkið í hægra horni. Undir „App stillingar“ velur þú „para aðgang“ og þá ertu beðinn um að velja þér fjögurra stafa PIN númer og endurtaka það. Að þessu loknu ættir þú að vera kominn inn.
Ef þú velur að setja appið upp í gegnum tölvu en þá býr kerfið til QR kóða sem þú parar við símann með myndavélinni.
(Ath. hafi appið verið sótt í gegnum Minn Mentor þá þarf að útskrá sig og skrá sig inn á ný til að geta parað appið við svæðið).
Starfsmenn:
Þegar starfsmaður er kominn inn á Mentor aðganginn sinn smellir viðkomandi á nafnið sitt efst hægra megin á síðunni.
Næst þarf að velja stillingar og þá kemur upp þessi mynd:
Nú smellir notandinn á plúsinn við að „Tengja nýtt app“
Þá kemur upp QR kóði. Notandinn opnar snjalltækið aftur og appið í snjalltækinu og velur að tengja með QR kóða. Þá leiðir snjalltækið notandann áfram, opnar myndavélina og þá er tekin mynd af QR kóðanum á snjalltækið. Með þessari aðgerð hafa aðgangarnir verið paraðir saman og appið að verða tilbúið til notkunar.
Lokaskrefið er að notandinn velji sér fjögurra stafa PIN númer og endurtaki það. Að því loknu er appið orðið virkt og tilbúið til notkunar í tækinu sem parað hefur verið við aðgang notandans.