Kæru fjölskyldur
Jólaleyfi nemenda á grunnskólastigi hefst að loknum litlu jólum, föstudaginn 19. desember.
Jólaleyfi á leikskólastigi hefst að loknum degi á Þorláksmessu, þriðjudaginn 23. desember.
Skólastarf hefst að nýju á leik- og grunnskólastigi mánudaginn 5. janúar.
Athugið að skrifstofa skólans fer í leyfi á sama tíma og grunnskólastig. Foreldrar barna á leikskólastigi geta haft beint samband við leikskólastigið í skilaboð í gegnum Völu.
Starfsfólk Urriðaholtsskóla óskar foreldrum og nemendum skólans gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, með kærri þökk fyrir gott og farsælt samstarf á árinu sem er að líða.