Nemendur í 2. bekk unnu verkefni í tilefni af degi íslenskrar náttúru. Þema verkefnisins var tré og hugtök tengd þeim. Nemendur gengu út í Vífilstaðahlíðina þar sem þau rannsökuðu tré veltu fyrir sér orðunum sprek, grein og drumbur, króna, börkur, planta, lauf, trjágróður, skógur og fl. Þegar í skólann var komið gerðu allir nemendur mynd af sínu tré með því að nota krumpaðan álpappír og dífa honum í málningu og stimpla á blaðið til að búa til trjákrónuna. Útkoman er glæsileg og höfðu allir gaman af.
.png)