Vegna áframhaldandi snjókomu á höfuðborgarsvæðinu er fólk eindregið hvatt til að halda sig heima og vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi í umdæminu, en hún mun breytast í appelsínugula viðvörun kl. 17, en áfram er spáð mikilli snjókomu eða slyddu með lélegu skyggni í allan dag. Um er að ræða fyrirmæli frá Almannavörnum til íbúa höfuðborgarsvæðisins og er mælst til þess að fólk sé komið heim fyrir klukkan 15 í dag.
Vegna þessa eru foreldrar og forráðafólk beðin um að hafa í huga að sækja börn tímanlega í skólann og frístund. Mikilvægt er í appelsínugulri viðvörun að yngstu börnunum sé fylgt heim af grunnskólastiginu.
Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um að sækja börnin sín fyrir klukkan 14:30 dag svo nemendur og starfsfólk komist heim áður en veður versnar.
Öll kennsla og tónleikahald fellur niður í Tónlistarskóla Garðabæjar frá klukkan14 í dag.
Vinsamlegast hafið í huga að frístundabíllinn gengur ekki og mikilvægt er að skoða hjá einstökum félögum hvernig dagskráin verður.