Hagnýtar upplýsingar varðandi Urriðakot, frístundaheimili Urriðaholtsskóla


Markmið

Markmið Urriðakots eru í gegnum óformlegt nám og sem fyrirmyndir að:

Skapa börnum hlýlegt, öruggt og notalegt umhverfi.

Kenna og þjálfa börnin í að tjá skoðanir sínar.

Kenna og þjálfa börnin í hvernig þau stjórna eigin lífi og umhverfi sínu.

Þjálfa og styrkja börnin í félags- og vináttufærni.

Með faglegu og skemmtilegu starfi að sýna börnunum hvernig er gott og uppbyggjandi að nýta frítímann sinn.


Dagskipulag

  • Opið er frá því að skóla lýkur kl. 13:20 – 16:30
  • Í lok síðustu kennslustundar fylgja kennarar börnunum í Urriðakot.
  • Fyrsta sem við gerum er að skrá börnin inn. Ef barn mætir ekki og finnst ekki við leit er hringt heim.
  • Að lokinni innskráningu er útivera, síðdegishressing (Skólamatur), val og klúbbastarf. Í lok dags er róleg stund.
  • Þegar börnin eru sótt er mikilvægt að sækja börnin á þeirra svæði og láta starfsfólk vita svo hægt sé að skrá þau út.


Samskipti og samstarf

  • Gott upplýsingaflæði á báða bóga tryggir gott samstarf og skilar sér í öruggu umhverfi fyrir börnin.
  • Mikilvægt er að tilkynna forföll, ef barn á að labba heim og ef barn fer heim með öðrum, fyrir kl. 12:00 á daginn með því að senda tölvupóst á fristund@urridaholtsskoli.is sem er tölvupóstur sem allt starfsfólk Urriðakots sjá eða hringja í síma 5919500. Eftir kl. 12:00 eigum við erfitt með að taka á móti skilaboðum þar sem starfið er byrjað.
  • Ef barn á að fara fyrr heim en tíminn þeirra segir eða sleppa frístund er mjög mikilvægt að forsjáraðili láti vita. Starfsfólk má ekki hleypa neinum heim nema búið sé að fá það staðfest frá forsjáraðila.
  • Upplýsingar skulu berast frá fullorðnum til fullorðins
  • Verum dugleg að tala saman og finna lausnir.


Skráning og greiðslur


Lengd viðvera

  • Þegar grunnskólastarf er í fríi er lengd viðvera í Urriðakoti.
  • Í lengdri viðveru er opið frá kl.08:30-16:30.
  • Lengd viðvera er í jólaleyfi, vetrarleyfi, páskaleyfi, skipulagsdögum og þegar að samtalsdagur grunnskólanema fara fram. Sækja þarf um þá daga sérstaklega.
  • Skráning fer fram í gegnum vefumsjónarkerfi frístundaheimila Vala frístund - Umsóknarvefur 3 vikum fyrir og er skráning opin í viku.


Frístundabíllinn

Íris Ósk Ingadóttir
Umsjónarmaður frístundaheimilisins Urriðakots
irisinga@urridaholtsskoli.is

Helgi Hrafn Þorsteinsson
Aðstoðar umsjónarmaður frístundaheimilisins Urriðakots
helgitho@urridaholtsskoli.is