Félagsmiðstöðin Urri

Merki Urra

Félagsmiðstöðin Urri er opin öllum börnum og unglingum í 5.-10. bekk, þriðjudaga og fimmtudaga. Einnig eru föstudags opnanir fyrir 8.-10. bekk annan hvern föstudag.

Opnunartími

Urri er opinn öllum unglingum í 8.-10. bekk, mánudaga og miðvikudaga 19.30-22.00 og annan hvern föstudag frá kl 17:00 – 19.00 og aftur 19.30-22.00. Það er frjálst að koma og fara hvenær sem er á opnunartímanum. Opið er fyrir 5. bekk frá 17:00 – 19:00 á þriðjudögum og 6.-7. bekk alla fimmtudaga kl. 17.00-19.00. Það er auglýst á þeirra svæði og Instagram síðu Urra https://www.instagram.com/urri_210 .

Staðsetning Urra

Urri er staðsettur á 1. hæð í stofu 145, við hátíðarsal skólans.

Hlutverk félagsmiðstöðvarinnar er að styðja við unglinga í gegnum fjölbreytt tómstundastarf. Megin markmið starfsins er að veita þeim tækifæri til samveru og stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn reyndra tómstundaleiðbeinenda. Leiðarljós starfsins er að efla félagsfærni, sjálfsmynd og virkni unglinganna. Unnið er út frá hugmyndafræði barna- og unglingalýðræðis, hugmyndum og áhugasviði nemenda skólans. Leitað verður eftir röddum unglinganna hvað varðar starfsemi og þær uppákomur sem verða hverju sinni, innra starf og umgjörð. Dæmi um viðburði á opnum kvöldum Urra: Spilakvöld · feluleikur um skólann · böll · gistigleði · fífamót · varúlfur · ratleikur · átkeppni · kökukeppni · kósýkvöld · bíókvöld · 8. bekkjarkvöld · þrautakvöld · slímgerð · popp og perl.

Starfsfólk Urra

Forstöðumaður Urra er Ragnhildur Jónasdóttir. Starf forstöðumanns felst m.a. í því að halda utan um og bera ábyrgð á allri starfsemi félagsmiðstöðvarinnar, félagsmálaval, stjórn nemendafélags skólans og aðstoða nemendur við undirbúning starfsins. Einnig tekur forstöðumaður að sér verkefni innan skólans eftir þörfum s.s. hópastarf og hópefli. Forstöðumaður heldur utan um og skipuleggur forvarnarmál unglingadeildar ásamt námsráðgjafa. Forstöðumaður tekur að jafnaði þátt í haust- , vetrar og vorferðum 8., 9. og 10. bekkjar. Sjö aðrir hlutastarfsmenn eru í Urra; Ellen Marta Baran, Helgi Hrafn Þorsteinsson, Guðjón Helgi Friðriksson og Júlía Kristine Jónasdóttir, Helena Líf Magnúsdóttir, Sandra Magnúsdóttir og Lilja Rún Sigurðardóttir.

Félagsmiðstöðin Urri er með virkt Instagram þar sem upplýsingar um dagskrá og annað kemur fram; Urri_210

Ef einhverjar spurningar vakna eða ef þið viljið koma með ábendingar ekki hika við að hafa samband; ragnhildurjona@urridaholtsskoli.is