Garðabær gaf út nýjan samskiptasáttmála vorið 2024 sem inniheldur áætlun um inngrip samskipta- og eineltismála og þjálfun nemenda í góðum samskiptum. Samskiptasáttmáli Garðabæjar er unninn af stýrihópi sem skipaður er fulltrúum Álftanesskóla, Flataskóla, Garðaskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla. Hópurinn starfaði undir handleiðslu Vöndu Sigurgeirsdóttur, lektors í tómstunda- og félagsmálafræði. Grunn- og tónlistarskólafulltrúi Garðabæjar rit- og verkefnastýrði sáttmálanum.

Í samskiptasáttmálanum er að finna skilgreiningu á samskiptavanda og einelti ásamt því að útlistuð eru rétt viðbrögð starfsfólk og forráðafólks þegar upp kemur slíkur vandi.

Í Urriðaholtsskóla er starfrækt samskipta- og eineltisteymi og í því sitja:

Steiney Snorradóttir, náms- og starfsráðgjafi - Teymisstjóri

Þóra Árnadóttir, skólafélagsráðgjafi

Jónína Klara Pétursdóttir, deildarstjóri mið- og unglingastigs

Guðrún Þorsteinsdóttir, deildarstjóri yngsta stigs

Una Guðrún Einarsdóttir, aðstoðarskólastjóri

Ef upp kemur samskiptavandi eða grunur um einelti gagnvart þínu barni eða öðrum er mikilvægt að skólasamfélagið fái þá vitneskju sem allra fyrst. Einelti ber að tilkynna með formlegum hætti með því að fylla út tilskilið eyðublað sem má nálgast hér: https://www.gardabaer.is/media/felagsthjonusta/Tilkynning-um-samskiptavanda-einelti.pdf

Þegar formleg tilkynning um einelti berst til skólans fer ákveðið vinnuferli í gang og eru málin ávallt unnin í samstarfi við málsaðila og forráðafólk þeirra.